02.05.2011 22:44:21 / egillsv
Jæja þá er sauðburðurinn byrjaður og byrjaði reyndar síðastliðinn fimmtudag. Var svo að keppa á Hængsmótinu í boccia um helgina þar sem maður hitti margt skemmtilegt fólk af öllu landinu og náði þar í þriðja sætið í sveitakeppni. Lokahófið sem var haldið að móti loknu var eitt það skemmtilegasta sem ég hef farið á og var mikið dansað og haft gaman.
»
20.10.2010 00:50:16 / egillsv
Jæja held það sé komin tími á smá lífsmark á þessari síðu sem hefur ekki verið hreyfð síðan um jólin 2008.
Nýjasta hjá mér í tölvu málum er að ég er farin að nota DosBox, og þar af leiðandi er maður farin að spila tölvuleiki aftur sem maður "installar" eða setur inn á tölvuna. Enda fannst mér alltaf bestu leikirnir vera fyrir Dos stýrikerfið. Besta við að spila Dos leiki er að flestir leikirnir fást frítt í gegnum netið og má nefna það að ég spilaði fyrstu útgáfuna af Grans Thef Auto í dag meðal annars en annars er hægt á einni síðu að lesa dóma um alla leikina sem gefnir voru út fyrir Dos. Svo langt er maður leiddur í þessum Dos áhuga sínum að ég hef hugsað út í að setja upp tölvu sem keyrir bara á Dos, bara spurning hvaða dos er best, fór nefnilega inn á Wikipedia um daginn og ætlaði að athuga hvort eitthver fróðleikur væri til um Dos á þessari síðu og rakst þar á heilan helling um Dos, meðal annars að til eru nokkrar tegundir af Dos. Sá það einnig að frá og með Windows95 gerði Microsoft Windowsið nánast að sjálfstæðum hugbúnaði sem vann ekki með Dos og má segja að þar hafi horfið mikið af því sem ég heillaðist af við tölvurnar í byrjun en það voru þessar einföldu skipanir sem maður þurfti að skrifa inn í Dos stýrikerfið, þó maður hafi ekki séð það almennilega fyrr en maður fór að nota DosBox sem virkar með Windows.
En jæja þar fyrir utan má segja að veturinn hafi komið núna í þessari viku, enda farið að kólna ansi mikið núna

, enda er ég byrjaður að vilja fara oftar í sund í pottana sem mér finnst bara betra eftir því sem það er kaldara. Á mánudaginn sem var fyrsti kaldi dagurinn að mínu mati, tók ég eftir að það var haglél þegar ég opnaði útidyrnar á leið í vinnu en veit ekki hve lengi það stóð yfir en tel víst að það hafi ekki verið lengi en gaman var að sjá hve gránaði fljótt meðan það stóð yfir.
»
24.12.2008 12:00:14 / egillsv
Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsælds komandi árs
.
Ástæðan fyrir bloggleysi mínu nú um stundir er vegna þess að ég hef reynt að kúpla mig sem mest ég má frá fréttum og annari umræðu um núverandi efnhagsástand síðan bankahrunið varð og einbeita mér frekar að hlutum sem færa mér meiri gleði. En annars bið ég ykkur að njóta hátíðanna og gera vel við ykkur í mat og drykk, því það mun ég svo sannarlega gera.
»
16.04.2008 23:57:47 / egillsv
Jæja í dag um hádegi var ég að hugsa um hvað ég ætti að fá mér að borða leit ég inní ísskáp og sá þar nokkrar pylsur sem urðu afgangs í gærkvöldi, ákvað að nýta þær því og fór þá að hugleiða hvernig ég myndi elda þær, varð úr að ég skellti samlokugrillinu upp á bekk til að hita brauðin og fór svo út á svalir að kveikja á grillinu og hita þær í því. Voru þá tvær ungar stelpur staddar á göngustígnum sem liggur ofan við húsið og kölluðu til mín og spurðu mig hvernig væri að búa í svona stóru húsi, töldu þær víst að einungis væri bara ein eða tvær íbúðir í húsinu. Leiðrétti ég þær og leiddi þær í allan sannleika um hve margar íbúðir væru í þessu húsi og fór inn að sækja pylsurnar eftir að hafa kveikt á grillinu. Frúin var eitthvað forvitin að vita við hvern eða hverja ég hefði verið að tala við og fannst þetta frekar fyndið er ég sagði henni það, og lét sig dreyma um hvernig væri best að skipta húsinu til dæmis upp í tvær íbúðir eða hvernig væri ef allt húsið væri bara sem ein íbúð.
Frúin skrapp í dag niðrá Heilsugæslu og fór ég fyrst í sparisjóðinn að sinna erindi og hitti á leiðinn aftur í bílinn félaga minn Hjört og spjallaði smá stund við hann en þorði ekki að spjalla of lengi því ég vissi uppá mig skömmina að hafa gleymt að koma klukkunni fyrir á sínum stað, skrapp því í heimsókn til að skila skóm sem ég hafði fengið lánaða af dóttur Sveitastelpunnar í Ránargötunni fyrir Áslaugu er við fórum í fermingaveislu er hún var hér síðast. Eftir það lagði ég leið mína aftur í miðbæinn til að njóta sólarinnar, hringdi ég í félaga minn Pétur og athugaði hvort hann mætti vera að því að koma smá stund út í sólina og spjalla enda nokkuð liðið síðan ég hitti hann síðast, sagðist hann mundi kíkja ef hann sæi lausa stund, sem og hann gerði og spjölluðum við aðeins og lögðum grundvöll að því að við færum að hittast, var hann svo rokinn enda í vinnunni. Sat ég áfram í sólinni nokkra stund og lagði svo leið mína eitthvað inní göngugötu, enda bjóst ég við að frúin færi að verða búinn sem og stóðst því varla var ég komin að heilsugæslunni áður en síminn hringdi og hún tilkynnti mér að hún væri loksins búinn.
Í kvöld fórum við svo á Greifann að borða með fjörfiskunum, hópi fólks sem hittist reglulega og hefur það gaman. Var maturinn mjög góður og fyrir mitt leyti get ég ekki sagt annað en skrýtin því virtist botnlaus og kláraði hverja sneiðina á fætur annarri og fékk mér meira en ég hafði í raun trú á að ég gæti borðað.
Er nú komin heim í afslöppun og hvíld eftir allan matinn og mun svo fara á morgun og gera eitthvað til að það setjist ekki of mikið á mig eftir þessa sprengju af mat sem líkaminn fékk í formi flatbaka
»
14.04.2008 17:40:29 / egillsv
Jæja var að skoða tónlistar safnið mitt í gær og komst að því að inn á milli á ég marga gullmola, leið í gær þegar ég var að hlusta á safnið og velja lögin að ég væri komin aftur í hlutverk tónlistarstjóra(plötusnúðs) og nema fannst allt heppnast mun betur og langaði helst að smala saman fólki og vera með smá dansiball fyrir það. ef einhver nennir að hlusta á mig spila og vantar tónlistastjóra má athuga hvort hægt er að semja.
rafgeymirin í bílnum hjá mér er að verða eitthvað lélegur og hef ég lent í því ítrekað í vetur að þurfa að láta draga bílinn í gang, fór svo eftir 17. mars minnir mig í rúmfó og keyptir mér start kappla og fæ því orðið bara start núna, enda miklu fljótlegra, og hef ég svo gaman að þessu að mér langar ekkert að kaupa mér nýjan geymi í bílinn þó þrýst sé mikið á mig. alltaf gaman að einhverju veseni finnst mér
.
las í gærkvöldi á mbl.is að 20 mínúna púl við heimilisstörf voru metin til jafns við 20 mínútna hreyfingu samkvæmt einhverri könnun til að halda geðheilsunni góðri en ekkert var sagt beint um hvort púlið við heimilisstörfin kæmi í stað hreyfingarinnar í þjálfun líkamans, sem ég efast um, en sá að einhvejir ætluðu að mér sýndist að vera góðir við konuna sína og færa þeim þær fréttir að þær þyrftu ekki að vera jafnduglegar við að hreyfa sig ef þær héldu sér bara við heimilisstörfin.
»
08.04.2008 13:53:19 / egillsv
Jæja hér hefur ekki verið bloggað í að verða hálfa öld finnst manni, eitthvað er nú tíminn styttri en það frá síðustu færslu en engu að síður komin tími til að henda einhverju inn hér. Ætluðum suður um síðustu helgi og keppa á íslandsmóti í boccia og í frjálsum, en sú ferð breyttist í ferðina, Aldrei fór ég suður, því við lentum í því að bíllinn valt og allir sem voru með voru meira og minna klambúleraðir eftir þetta og frúin einna verst farin þar sem hún varð viðskila við bílinn. Handleggsbrotnaði hún og hlaut sem betur fer enginn önnur meiðsl við þetta, og vorum við svo heppin í óheppninni að bíll frá Björgunarsveitinni Reyk var kyrrstæður út í vegkanti er við komust loksins út úr bílnum og meðferðis yfirmaður bráðamótöku Landsspítalans. Ellý er losnuð út af sjúkrahúsi núna en hún hefur dvalist þar yfir helgina, sluppu sem betur fer allir aðrir vel frá þessu aðeins með minniháttar hnjask.
»
19.12.2007 18:08:12 / egillsv
Jæja alltaf styttist í jólin og er maður að verða búin að öllu sem er á dagskrá núna fyrir jólin, búin að kaupa þær gjafir sem gefnar verða nema fyrir mömmu og pabba og bræður mína, sem verður jafnvel gert á Þorláksmessu ef tími gefst til. Hringdi í Áslaugu Guðrúnu áðan og óskaði henni góðrar ferðar en hún er á leið til Kanarí og ætlar að eyða jólum og áramótum þar með móður fjölskyldu sinni, en koma svo norður um leið og hún kemur til landsins og vera hér á þrettándanum. Hef ekki enn farið og nýtt mér jólaopnunartíma verslana og reyndar haldið mér í nokkurri fjarlægð frá öllum verslunum utan hefbundsins opnunartíma, reyni að stressa mig ekki of mikið upp nú í aðdraganda jólanna.
»
16.12.2007 22:15:17 / egillsv
jæja þá ætla ég en henda þeim fréttum hér inn að ég stóðst áfangann sem ég tók núna á haustönn í VMA, og fékk 7 úr honum. áfanginn heitir "samskipti 103" og því margt sem lærði í honum sem maður getur nýtt sér í framtíðinni ef þess gerist þörf.
annars er helgin búin að vera ágæt og aldrei þessu vant fór maður á djammið, en fór bæði föstudags og laugardagskvöld á djammið með Hákoni og Gesti. en er líka búin að taka nokkra FIFA leiki við hákon sem flestir hafa unnist.
en annars er nú bara rétt rúm vika í aðfangadag og ætlum við Ellý að eyða aðfangadagskvöldi með fjölskyldunni hennar Ellýjar.
»
13.12.2007 02:32:17 / egillsv
Já hef velt þessu fyrir mér í nokkurn tíma, en ætli það sé eitthvað að manni ef maður vill helst vaka á næturnar? Hef alla tíð fundið fyrir meiri þörf til að vaka á kvöldin eða næturnar en eftir því sem maður eldist hefur þetta þróast út í það að maður vill vaka lengur fram eftir nóttu með hækkandi aldri og sofa frekar fram undir hádegi. Sumir tala um að fólk sé kvöldsvæft og aðrir morgunsvæfir en þar sem í mínu tilfelli er þetta að þróast út í að snúa sólarhringnum alveg við velti ég því fyrir mér hvort þetta sé eðlileg þróun þar sem mér er farið að standa á sama um hvort ég missi af einhverju sem gerist á morgnana til að ég geti sofið.
»
20.11.2007 14:58:18 / egillsv
Jæja þá ætla ég að koma með smá færslu um tímabilið frá síðasta bloggi. má meðal annars nefna það ég skrapp suður að heimsækja Tryggva með Hirti, kalla ég þá ferð fyllerísferð vegna þess að aldrei leið meira en tólf tímar frá því ég drakk síðasta bjór þar til ég opnaði næsta, en í þessari ferð var labbað mikið á mælikvarða reykvíkinga og nágranna en á laugardeginum löbbuðum við frá landsspítalanum við hringbraut og í skeifuna og aftur til baka með stoppi í kolaportinu. daginn eftir fórum við svo í „stórverslun“ með leikföng sem ber nafnið Toy‘r‘us, sem er ekkert svo stór og með frekar lélegt úrval að mínu mati, bauð ekki upp á meira en Siggi Gumm bauð upp á hér í gamla daga miðað við pláss. fannst þessi verslun líka lítil miðað við lísingar sem ég hafði heyrt frá fólki og úr blöðum. Einnig komst ég að því í þessari ferð að tal reykvíkinga um hávaða frá flugvellinum á ekki við rök að styðjast því mér finnst ég heyra meira frá flugvellinum hér þega vélar taka á loft og lenda en í reykjavík. og vil ég því velta upp þeim möguleika að flytja flug til Akureyrar til Húsavíkur með sömu rökum og heyrst hafa vegna flutnings reykjavíkurvallar úr vatnsmýrinni(nota bara þessi einu rök vegna þess að ég hef ekki kynnt mér önnur rök og þar af síður borið þau saman).Íslandmótið í boccia var síðan fyrstu helgina í nóvember og náðum við Ellý góðum árangri þar, varð ég í fyrsta í annari deild og Ellý í öðru í fyrstu deild, hljómar skemmtilega saman. þessa helgi og reyndar frá helginni áður var hún Áslaug Guðrún hjá okkur og fannst henni mjög gaman að geta komið með á mótið en verst fannst henni að geta ekki spilað líka.Verð ég nú að segja að það er ansi sniðugt sem þeir eru farnir að gera út í Krossnesi þar sem þeir kaupa gömul skip sem eru farinn að safnast upp í höfnum landsins til að búta þau niður og selja alla málma sem tilfalla úr landi og endurnýta því skipin á þennan hátt, einnig kaupa þeir skip sem er búið að leggja til að selja úr landi. verst er þó að með hverju skipi glatast saga sem ekki er víst að varðveitist áfram en hins vegar eru þetta skip sem í fæstum tilfellum voru smíðuð hér á landi og því kanski ekki eftir jafn miklu að slægjast í iðnaðarsögunni og ef það væri smíðað hér á landi.
»
25.10.2007 15:58:09 / egillsv
Jæja þá er komið að bloggi, hef ekki bloggað lengi vegna þess að nánast allur minn frítími hefur farið í lærdóm en það horfir nú til betri vegar því ekki eru eftir nema 7 vikur af skólanum, hvað sem ég geri í framhaldinu.
Fór fyrir þrem vikum að vísu til frænda míns á laugardagskvöldi í partý hjá honum, fór með tvo bjóra, rest úr Opalskot flösku blárri og 2/3 í viskýfleyg(Jameson), drakk ég bjórinn nokuð rólega og spjallaði við fólkið og fékk mér eitt skot, en þá byrjaði kærasti frænku minnar að hvetja mig til að fá mér meira og fór svo að lokum að hann skoraði á mig að klára skotin og hann skyldi hundur heita(eða eitthvað álíka) ef mér tækist að klára, ekki er hann búin að taka við viðurnefninu ennþá en ég kláraði flöskuna og fór svo í viskýið sem ég var búin að vera að dreypa á allt kvöldið og fannst hálf bragðlaust. en eftir að hafa þambað skotin kláraði ég viskýið og endaði kvöldið hjá mér á því að ég var keyrður heim áður en hinir fóru að skemmta sér og endaði ég á að drepast inn í rúmmi. Ellý var að passa þetta kvöld og vissi að ég hafði farið út og hafði því engar áhyggjur af mér því ég fer yfirleitt ekki að hugsa mér til heimferðar fyrr en um þrjú leytið, en þetta kvöld þegar hún var búin að gefast upp á að ég myndi hringja í hana og biðja hana að sækja mig þá kom hún heim og það var kveikt inn á baði en við gleymum annara aldrei að slökkva ljósin áður en við förum út, en síðan kom hún upp og ætlaði að opna þá var ólæst og henni var hætt að lítast á blikuna þá en fór samt inn og sá mig dauðann á rúmminu og varð svolítið léttara við að sjá að ég væri bara komin heim en ekki einhver búin að brjótast inn.Helgina eftir þetta fyllerí mitt hélt Afi upp á áttræðis afmælið sitt og endaði ég á djamminu eftir það og var ekki kominn heim fyrr en ganga hálf fimm þá nóttina og náði fimm til sex tíma svefni þá nóttina en kvöldið eftir fórum við á haustfagnað ÚA(fjölþjóðahátíð
og entist ég ekkert á djamminu þá nóttina og fór því með Ellý fljótlega heim eftir að hafa verið smástund á djamminu. þá má einnig nefna það á þessum tíma þá hef ég verið að byggja sparkvöll á Þelamörk og var beðin einu sinni um að hjálpa við að sýna krökkum í öðrum bekk í Giljaskóla boccia, en hef nú verið beðin um að koma með þeim sem er að kynna bocciað fyrir krökkunum tvisvar niður í Oddeyrarskóla í næstu viku. einnig vil ég benda fólki á að íslandsmótið í boccia í einstaklingskeppni verður fyrstu helgina í nóvember hér í íþróttahöllinni.
Fór líka á eina mynd á þessu tímabili sem er mjög minnisstæð og hvet ég alla sem vilja sjá mynd um hvernig heimurinn er í dag og hefur verið undanfarin 15-20 ár að sjá en það er myndin "Kingdom".
Er þetta svona það helsta fréttnæma sem hefur skeð á undanförnum vikum sem ég man eftir ásamt smá fréttum.
»
12.09.2007 11:10:23 / egillsv
Jæja um helgina síðastliðna var farið á kaffihús á föstudagskvöld og svo labbað heim upp úr miðnætti og passaði það akkúrat að þá var sent mér SMS og spurt mig hvort ég væri ekki á djamminu. ný kominn heim ákvað ég að labba aftur niður í bæ og djamma smá með frænda mínum sem varð þó ekkert úr því ég nennti ekki að elta hann heldur fór og settist hjá öðrum félögum mínum sem voru á kaffiAk, kom svo Ellý að sækja mig um hálf þrjú.
daginn eftir var svo komið að því að steggja félaga minn og var hann sóttur um tvö leytið og rúntað með og hann látinn drekka smá. að því loknu var komið fyrir sláttuvél á einu hringtorgi bæjarins, nánar tiltekið við Veganesti og hann látinn slá það á nærbuxum einum fata og með
g-steng utan yfir. að því loknu var hann sendur niður í bæ og látinn betla fyrir jakkafötum sem gekkhálf brösulega þar sem svo fáir voru á rúntinum, en hann fékk að fara á Voice og syngja í beinni svona í smá skaðabætur. eftir þetta var farið heim til mín og pöntuð pítsa handa hópnum og farið að drekka sem endaði á að einn fór heim að skipta um föt og drapst þar uppí rúmi og annar dó hérna í sófanum, einn ákvað að fara heim og kona þess sem drapst hér í sófanum kom og sótti hann en hún hafði verið bílstjórinn okkar um daginn, endaði það því með því að við vorum bara þrír sem fórum í bæinn ásamt Ellý sem var með okkur fyrst á kaffiAk í smá stund og var svo aðeins lengur með okkur á Vélsmiðjunni en eftir að hún fór fór ég sjálfur á kaffiAk aftur því þar er yfirleitt fleiri sem ég þekki þó ég hafi svo sem þekkt slatta af fólki á Vélsmiðjunni.
já í gær var líka 11/09 en sá dagur árið 2001 er ógleymanlegur fyrir þá staðreynd að bandaríkjaher sprengndi þá upp tvíburaturnana í Néw York vegna skipulagsbreytinga sem hafa haft áhrif á allan heiminn síðan.
»
05.09.2007 23:16:02 / egillsv
jæja í dag er merkisdagur en hann hefði orðið 61 árs í dag ef hann væri á lífi, blessuð sé minnig hans.
en að öðru, fór í dag í leit minni af stafrænum myndum af honum á Queen síðuna og fann þar myndband úr afmælisfögnuði Freddie og sýndist mér þetta vera frá í gær svo jeg er ekki viss um hvort þessi dagur hentaði betur í fögnuðinn eða hvort tilefnið hafi líka verið eitthvað annað, en hér er slóðinn: http://exodus.interoutemediaservices.com/?id=8577b221-83dd-4d46-b511-896966ca30bd&delivery=stream
er byrjaður í skólanum en er í tveimur áföngum nú, en einum var jeg í vor svo þetta eru 100% sem jeg bæti á mig í lærdómi og fer líklega þá helmingi meiri tími í það svo ekki er jeg með það alveg á hreinu hvernig tíma mínum jeg sparsla saman í vetur en það kemur í ljós.
um síðustu helgi fórum við Ellý í sumarbústað fremst í Fnjóskadal í heimsókn, en þar er frændi minn að hjálpa pabba sínum að reisa bústað
um helgina sem Akureyrarvakan var kom Tryggvi norður og voru farnar nokkrar kaffihúsaferðirnar á meðan, en hann kemur nú ekki það oft norður að það sé ekkert að tala um
»
16.08.2007 01:23:55 / egillsv
Jæja nú
er orðið svoltið síðan ég skrifaði síðast og er því margt
búið að gerast í millitíðinni. Áslaug Guðrún
kom 20. júlí
og fór aftur heim 7. ágúst. Fórum við nokkrum sinnum í sund
með hana, fórum í strætó og í Kjarnaskóg svo eitthvað sé
nefnt, en það sem mér fannst standa uppúr var sigling sem ég
fór með í með Ellý og Áslaugu ásamt Önnu Elísabet frænku
okkar sem er jafngömul Áslaugu, með Húna 2, á sunnudeginum um
versló eða þann 5. ágúst. Einnig var gaman þá um
kvöldið er það var sameiginlegt fjölskyldugrill hjá systkinum
pabba en þangað ákváðum við að fara í stað þess að fara á
Brekkulæk og grilla þar, þó að systur mömmu væru þar en sú
ákvörðun var tekin þar sem Áslaug hafði vitanlega fleiri til
að leika sér við þar en á Brekkulæk, samt var hún búin að
semja við frænku sína um að fá að koma með á lokahátíðinna á
"Einni með öllu".
Fórum svo suður síðasta fimmtudag
með Birgi Óla þar sem við gátum fengið að gista í íbúð sem Hákon og
Jón Áki keyptu sér fyrir sunnan en hún stóð tóm því Hákon er í
skóla úti en Jón Áki og Unnur komu norður að vinna í sumar.
Fylgdumst því með GayPride göngunni en það var víst ástæðann fyrir
því að Biggi ætlaði suður held ég, en þegar Ellý heyrði það að hann
væri að fara þá langaði henni líka og var alveg friðlaus þar til ég
samþykkti það.
Ellý hitti síðan Ágústu og Áslaugu
mannþrönginni og lét mig síðar vita hvar þar væru, en við ákváðum
að fara með þeim út að borða fyrst við hittumst þarna, en síðan
fórum við Ellý í bíó um kvöldið á Transformers og get ég ekki sagt
annað en að ég mæli með að allir fari að sjá hana því þetta er
stórkostleg mynd. Daginn eftir hringdi Áslaug svo í okkur og
spurði hvort hún mætti ekki gera eitthvað með okkur áður en við
færum aftur norður. Ákváðum við því að fara með hana í IKEA
þar sem hún hefur svo mikið dálæti á boltalandinu sem er þar, gátum
við því farið að skoða á meðan og varð úr að eitthvað var keypt
líka. En svo þegar við vorum búin þarna í IKEA fórum við í
kolaportið og þar fann ég nokkrar Queen plötur úi safnið mitt en ég
er farin að safna vínyl-plötum með þeim og Leeds húfu. Eftir
að við vorum búin þarna skiluðum við svo Áslaugu en þá var líka
komin tími til að fara að ganga frá íbúðinni og gera sig kláran
fyrir heimferð.
En annars verð ég að leyfa mér að
gagnrýna þetta lögregluríki sem við virðumst búa í, allsstaðar búið
að koma fyrir (ó)öryggismyndavélum og einnig að koma þeim út í
umferðina sem mér finnst fásinna þar sem að mínu áliti á lögreglan
að hafa afskipti af afbrota mönnum í stað þess að festa atburðin á
filmu og senda til eigandabifreiðarinnar svo hann geti gert grein
fyrir hver hafi verið á bílnum í það og það skipti, sem persónulega
mér er ómögulegt að muna hvenar ég hafi verið á bílnum eða einhver
annar. Einnig verð ég að gagnrýna nýju mótorhjólin sem
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var að taka í notkun en þau virðast
bara vera til þess að taka upp brotin og senda í pósti til eigenda
þess ökutækis sem í hlut á, finnst mér að þar sé vegið að
starfsheiðri lögreglumanna og látið líta út sem þeir séu
óþarfir.
»
24.07.2007 12:20:20 / egillsv
jæja fór á 10 ára reunion á laugardagskvöldið síðasta þar sem
við hittumst sem vorum saman í Hrafnagilsskóla og var það mjög
gaman. kom í ljós að í bekknum eru 6 eða 7 sem eru
menntaðir á sviði sem húsbyggjandi getur nýtt sér, allir strákarnir
voru giftir eða í sambandi á meðan engin stelpan var gift en og
fáar í sambandi, búið var að breyta skólanum svo mikið frá því að
við vorum í honum að varla stóð uppi sá veggur sem var þegar við
vorum þar nema í kjallaranum og ekki líðist sá fíflagangur í
skólanum sem við var hafður í okkar tíð í þessum skóla ennþá því
hann er búin að marka sér stefnu þar sem dagurinn byrjar á
samverustund þar sem hver bekkur er með atriði og frímútur eru
teknar undir lærdóm.
fórum svo seinna um kvöldið eftir góða drykkju, sundferð, leiki,
mat, og fleiri leiki ásamt að horfa á video frá gömlum leikritum
sem voru tekin á árshátíðum í bæin þar sem við enduðum á kaffiAk.
og skemmtum okkur þar fram eftir nóttu.
»
Síður:
1 2 3 ...
16